the state that Im in
Barn að koma í heiminn.
Vinkona mín er að fara að eiga núna í nótt, samkvæmt mínum bestu heimildum, sem guðfaðir barnsins.

Og auðvitað er ég stressaðari en góðu hófi gegnir, ég er jú ábyrgðarlaus suddi sem sukkar of mikið, ég er náttúrulega láglaunamaður og nemi, og veit ekkert hvert ég stefni í framtíðinni.. en ég verð að taka þessari ábyrgð og get ekki skorast undan, enda er vinkona mín dáðastúlka og verðskuldar allt hið besta, og hefur reynst mér vel í fortíðinni... svo ég verð rétt eins og Michael Corleone, að gera það sem menn verða að gera.Og standa mig.
posted by Jimy Maack @ 1:05:00 AM